27.01.2012 13:59
Feðgar að búa til pizzu

27.01.2012 12:37
Mat á menntun
26.01.2012 06:04
Var hugsað til Baldurs og Bóa þegar ég sá þetta hjól....

24.01.2012 09:33
Artic Cat ProCross F1100 TURBO
Sérstök afmælis-útgáfa í tilefni 50 ára afmælist Artic Cat vélsleðana. Sleðinn er með 4 strokka, 1056 kúbik twin-cylinder sem gefur 177 ótrúlega hesta. Digital mælist sýnir hraða, kílómetra, tíma á vél, klukku og fleira. RMC bremsukerfi er á græjunni ásamt sérstöku 50 ára afmælist grafíti á sleðanum........og margt fleira sem ég veit ekkert um.

23.01.2012 08:21
Góðann daginn.....
Sælt veri fólkið,
Erum snemma á fótum í dag, ræktin kl. 08, fundur með ráðgjafanum kl. 10, fundur í kommúninni kl. 11, hringja til Íslands vegna strákana með ríkisfang og margt fleira. Strákarnir voru mættir fyrir framan imbann kl. 6:30 öskrandi á okkur að kveikja á réttri teiknimynd (þeir kunna að kveikja á tví en ekki skipta um rás). Morgunmatur og svo að stað með þá í leikskólann.
Þangað til næst,
Bless
22.01.2012 11:22
Nýtt ár og 15kg léttari
Sælt veri fólkið,
Nú er ég loksins búinn að borga fyrir að opna síðuna aftur, var búinn að gleyma því að hún lokaði 15. jan.....ekki það að ég hafi áhyggjur af því að einhver hafi reynt að komast inn á síðuna.
Það lítur út fyrir að allir séu á fésinu.......
Ég er búinn að eyða öllum myndum frá FB og er í gangi að eyða öllum færslum og öllu því sem fylgir því að vera á FB, ætla eingöngu að nota það til að setja inn tilkynningar að ég hafi sett inn nýjar færslur hér á þessa síðu. Stígur vefstjóri er í gangi með margar nýjungar og hlakkar mér til að sjá hvað hann kemur með......VONANDI FLJÓTLEGA
Facebook er gjörsamlega að fylla mann af allskonar beiðnum, spilum og leiðindum, maður verður brjálaður af þessu öllu. Nú eru þeir að reyna að bæta allskonar rusli inn á FB svo að maður noti meiri tíma á síðunni, tala nú ekki um auglýsingarnar sem koma við hliðina af myndum af börnunum mínum. Ég hvet ALLA til að hætta á FB og fá sér sína eigin síðu þar sem maður getur ráðið hvað fer á síðuna t.d. www.123.is
Af okkur er allt gott að frétta, ég er í brjálaðri megrun eftir frekar háar tölur í kóli (9,1 og 7,0) og er búinn að missa 15kg og ætla að missa 11 í viðbót, frá 126kg í 99,99kg (á myndir af þessu öllu saman sem koma kannski hér). Mataræðið hefur heldur betur verið tekið í gegn, ekkert smjör, rjómi, egg, lítið sem ekkert hveiti, kæfa, sælgæti (bara 70% súkkulaði) og fleira. Það hefur tekið mikið á taugarnar að hætta í öllum feitum mat.......þótti gott að fá pizzu, kebeb, franskar, sósur og fleira góðgæti. Ætla seinna að koma með lista yfir þá matvöru sem ég á að forðast og einning hvað ég má borða.
Jól og áramót.........stutt voru jólin. Við elduðum kalkún að hætti Gordon Ramsays og smakkaðist hann vel þ.e.a.s kalkúnninn (eru ekki 2 n í þessu?). Strákarnir skemmtu sér vel, hjálpuðu við bakstur og fengur margar gjafir. Ótrúlegt hvað þeir voru samt rólegir, ég man nú að ekki voru við bræðurnir beint rólugestu börn í heimi þegar kom að því að opna gjafirnar. Mamma og pabbi komu hér og voru hjá okkur yfir áramótin og vona ég að þau hafi haft það gott og skemmt sér vel með okkur. Pabbi kolféll fyrir kaffivélinni minni og keypti sér eitt stk. sjálfur enda góð græja á ferðinni, hér er hægt að sjá hvað hann keypti sér.
Ég ætla að vona að ég verði nú duglegri í framtíðinni að koma með fréttir af okkur og setja inn myndir (er búinn að setja inn myndir frá jól og áramót inn). Við erum að ganga í gegnum mikið hér akkúrat nú og þurfum við að taka stórar ákvarðinir um okkar framtíð. Camilla mun útskrifast 29. júní og ég þarf að koma mínu lífi af stað aftur, ég er orðinn mjög þreyttur á því að hanga hérna heima og vonandi gerist nú eitthvað fljótlega.
Þangað til næst,
Bless
- 1





