18.12.2009 09:00
Til hamingju með 20 ár....
Þrautseigju: "Krakkar, þið reynduð
ykkar besta og mistókst hræðilega. Lærdómurinn er að reyna aldrei."
Félagsskap: "Hver er tilgangurinn að
fara út? Við endum hvort eð er hérna heima aftur."
Vinnuna: "Þú ferð ekki í verkfall ef þér
líkar ekki við vinnuna þína. Þú ferð bara á hverjum degi og gerir það með
hangandi hendi. Það er ameríska leiðin."
Bandaríkin: "Bandaríska heilbrigðiskerfið
er það besta á eftir Japan...Kanada, Svíþjóð, Bretlandi...jæja, allri Evrópu.
En þú getur þakkað þínum sæla að við búum ekki í Paragvæ."
Konur: "Sonur sæll, konur eru
eins og bjór. Þær lykta vel, líta vel út, þú myndir traðka yfir þína eigin móður
til að komast yfir einn. En þú getur ekki stoppað eftir einn. Þú vilt drekka aðra
konu!"
Dauðann: "Ekki láta dauða Krulla
fá á þig strákur. Fólk deyr alltaf. Bara sisona. Þú gætir jafnvel vaknað dáinn á
morgun. Jæja, góða nótt."
Menntun: "Hvernig á menntun að fá mig
til að finnast ég gáfaðri? Þar að auki, í hvert sinn sem ég læri eitthvað nýtt,
ýtir það einhverju gömlu efni úr heilanum á mér. Manstu þegar ég fór á víngerðarnámskeiðið
og lærði að brugga, og ég gleymdi hvernig á að keyra bíl?
Kynlíf: "Ég ætla í aftursætið á
bílnum, með konunni sem ég elska, og ég kem ekki aftur fyrr en eftir tíu mínútur!"
Sannleikann: "Staðreyndir eru
tilgangslausar. Það er hægt að nota staðreyndir til að sanna allt sem jafnvel örlítið
satt."
Lífsleikni: "Að komast undan (e.
weaselling) hlutunum er mikilvægt. Það er það sem skilur okkur frá dýrunum...fyrir
utan merði (e. weasels)."
Að eldast: "Pabbi, þú hefur unnið mörg
afrek. En þú ert mjög gamall maður og gamalt fólk er gagnlaust."
Heppni: "Ef þú vilt afreka
eitthvað í lífinu verður þú að vinna fyrir því. Hafið nú þögn - það er verið að
tilkynna lottótölurnar."
Þjófnað: "Stela? Hvernig gastu það?
Hefurðu ekkert lært af manninum sem predikar yfir okkur í kirkjunni? Kafteinn
hvað hann nú heitir? Við búum í samfélagi laga og reglu. Af hverju heldurðu að ég
hafi tekið þig á allar þessar Lögegluskólamyndir (Police Academy)?"
Íþróttir: "Sonur sæll, þegar þú
tekur þátt í íþróttum skiptir ekki máli hvort þú tapar eða vinnur. Heldur
hversu drukkinn þú getur orðið."
Andlega heilsu: "Af hverju þurfum við sálfræðing?
Við vitum að strákurinn okkar er klikkaður."
Trú: "En hvað ef við völdum
ranga trú? Í hverri viku værum við að gera Guð reiðari og reiðari?"
Eiturlyf: "Frægðin var eins og
eiturlyf. En það sem var meira eins og eiturlyf voru eiturlyfin."
Hið yfirnáttúrulega: "Lísa,
vampírur eru sögusagnir, eins og álfar, gremlins og eskimóar."
Kvennaíþróttir: "Lísa, ef Biblían hefur
kennt okkur eitthvað annað, og hún hefur það ekki, er það að stelpur eiga að
halda sig við stelpuíþróttir eins og olíuglímu, box án fata og svo
framvegis."
Ölvun: "Ég er ekki í neinu ástandi
til að keyra...Bíðið við! Ég er fullur. Ég ætti ekki að hlusta á það sem ég er
að segja"
