20.12.2009 07:05

Jólin nálgast

Sælt veri fólkið,

Jæja, nú nálgast jólin og er kominn spenningur hér í bæ. Halldór vill opna allar gjafirnar nú og höfum við þurft að fela allar gjafirnar.  Emil tekur þessu öllu saman með stakri ró og ælir bara öðru hvoru til að minna á sig.  Titta er bara eins og vanalega um jólin.....STRESSUÐ....allt þarf að vera tip top. Dóri pabbi kemur þann tuttugusta og annann og verður hér til fyrsta.



Við vonum nú að þetta verði nú allt samt í góðu lagi og við óskum öllu gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári.

Jólakveðja frá fjölskyldunni í Danmörk