25.12.2009 13:47
Gleðileg jól
Sælt veri fólkið og gleðileg jól.
Nú er mesta stressið búið og nú er bara að leggjast niður með tærnar upp í loftið og horfa á nýja
æfóninn sem ekki virkar. Það tók okkur 2 daga að opna allar gjafirnar og viljum við þakka öllum sem þar komu við sögu, við munum seinna þakka fyrir okkur og hvað var í pökkunum fylgir líka. Tréið okkar var sérstaklega fallegt í ár en við fundum út að við þurfum MIKIÐ pláss undir trénu........það var ekkert smá mikið af pökkum þetta árið enda vorum við 8 í allt. Við erum nú þegar byrjuð að ræða hvar við verðum næstu jól og kemur Ísland sterklega til greina. Við söknum Dóra pabba mikið en hann þurfti að aflýsa ferðinni hingað vegna veikinda og vonum við að hann hafi haft góð jól, okkur skilst að hann hafi verið hjá Óla frænda á aðfangadag.....vonandi fékk hann ekki soðningu eins og afi og amma hér um árið.....he he he. Nú er Hamborgahryggurinn í ofninum, Titta er að strauja, Janik að gera alla brjálaða með borðtennisspaðanum sínum, Phine sefur, Cristopher horfir á Friends, Halldór Malik leikur sér að byssunni sem Sjonni og Co. gáfu honum (takk fyrir það), Emil Inuk reynir að sofa (Janik er ekki sá hljóðlátasti), Camilla er að reyna slappa af og ég sit hér og skrifa þetta.....jú Kenzo liggur og sefur líka. Við vonum að allir sem við þekkjum hafi haft gott aðfangadagskvöld og að steikin hafi runnið vel í gegn. Enn og aftur viljum við óska öllum gleðilegra jóla. Við munum skrifa meira á morgun og næstu daga. Við erum einnig búin að setja inn nýjar myndir og er hægt að sjá þær hér.
æfóninn sem ekki virkar. Það tók okkur 2 daga að opna allar gjafirnar og viljum við þakka öllum sem þar komu við sögu, við munum seinna þakka fyrir okkur og hvað var í pökkunum fylgir líka. Tréið okkar var sérstaklega fallegt í ár en við fundum út að við þurfum MIKIÐ pláss undir trénu........það var ekkert smá mikið af pökkum þetta árið enda vorum við 8 í allt. Við erum nú þegar byrjuð að ræða hvar við verðum næstu jól og kemur Ísland sterklega til greina. Við söknum Dóra pabba mikið en hann þurfti að aflýsa ferðinni hingað vegna veikinda og vonum við að hann hafi haft góð jól, okkur skilst að hann hafi verið hjá Óla frænda á aðfangadag.....vonandi fékk hann ekki soðningu eins og afi og amma hér um árið.....he he he. Nú er Hamborgahryggurinn í ofninum, Titta er að strauja, Janik að gera alla brjálaða með borðtennisspaðanum sínum, Phine sefur, Cristopher horfir á Friends, Halldór Malik leikur sér að byssunni sem Sjonni og Co. gáfu honum (takk fyrir það), Emil Inuk reynir að sofa (Janik er ekki sá hljóðlátasti), Camilla er að reyna slappa af og ég sit hér og skrifa þetta.....jú Kenzo liggur og sefur líka. Við vonum að allir sem við þekkjum hafi haft gott aðfangadagskvöld og að steikin hafi runnið vel í gegn. Enn og aftur viljum við óska öllum gleðilegra jóla. Við munum skrifa meira á morgun og næstu daga. Við erum einnig búin að setja inn nýjar myndir og er hægt að sjá þær hér.Endilega muna að skrifa í gestabókina.
Jólakveðja frá fjölskyldunni í Danmörku.
Skrifað af Sigursteinn
